Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
29. október 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Skeiðholti, Vesturlandsvegi og Gagnvegi.

19.10 2026
Brot 226 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 12. - 19 október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 43.631 ökutæki ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Tíu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 26 ökumanna voru mynduð í Skeiðholti í Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Skeiðholt, við Brattholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku 27% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.
20.10 2026
Brot 110 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Vesturlandsveg, við Suðurlandsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.052 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 120.
Brot 27 ökumanna voru mynduð á Gagnvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Gagnveg, við Garðhús. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því óku 32% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.