Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
20. október 2025
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Vesturlandsvegi, Reykjanesbraut, Þingvallavegi, Hringbraut, Fífuhvammsvegi og Tunguvegi.

13.10.2025
Brot 437 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 6. – 13. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 32.900 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. Átta ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
13.10.2025
Brot 41 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Vesturlandsveg, í Ártúnsbrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.599 ökutæki þessa akstursleið og því óku 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 117.
14.10.2025
Brot 42 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjanesbraut, við Miðgarð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.323 ökutæki þessa akstursleið og því óku 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.
Brot 8 ökumanna voru myndað á Þingvallavegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Þingvallaveg, við Tjaldanes. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.
15.10.2025
Brot 40 ökumanna var myndað á Hringbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Hringbraut, að Furumel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 493 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.
Brot 62 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Fífuhvammsveg, að Lindarvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 343 ökutæki þessa akstursleið og því óku 18% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.
17.10.2025
Brot 201 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá 13. - 17. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 18.425 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93. Níu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
17.10.2025
Brot 50 ökumanna var myndað á Tunguvegi Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Tunguveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því óku 45% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.