Hópslysaæfing í Reykjanesbæ 2 maí 2026– Viðbragðsaðilar verða áberandi.
30. apríl 2026
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum standa fyrir umfangsmikilli hópslysaæfingu laugardaginn 2. maí 2026 í Reykjanesbæ. Æfingin hefst klukkan 11:00 og lýkur um klukkan 14:00

Markmið æfingarinnar er að efla samhæfingu og viðbragðsgetu helstu viðbragðsaðila á svæðinu við raunverulegar aðstæður.
Æfingin fer að hluta fram í og við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), auk nærliggjandi svæða þar sem verið er að kanna áfallaþol heilbrigðisstofnunarinnar við atvik að þessu tagi.
Vegna æfingarinnar verður svæðið við smábátahöfnina í Gróf lokað á meðan á henni stendur. Einnig má búast við aukinni umferð viðbragðsaðila á Ægisgötu og í kringum Keflavíkurhöfn.
Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og virða lokanir og fyrirmæli á vettvangi. Athygli er vakin á því að um æfingu er að ræða og getur hún valdið tímabundnum truflunum.
Viðbragðsaðilará svæðinu þakka fyrir skilning og samvinnu allra og sérstaklega íbúa á svæðinu.