Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hlutur kvenna meðal gerenda í heimilisofbeldismálum hefur aukist

24. júní 2026

Ný gögn ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung 2026, janúar til mars, sýna að konur voru grunaðar um að vera árásaraðili í rúmlega fjórðungi heimilisofbeldismála, eða 27%.

Hlutfallið hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár, úr 17% árið 2021 og í 24% árið 2025, og hefur ekki mælst hærra á tímabilinu. Helst má rekja þetta til hærra hlutfalls þar sem um er að ræða fjölskyldutengsl. Tilkynningum um ágreining milli skyldra og tengdra aðila fækkaði verulega milli ára.  Karlar eru þó áfram í miklum meirihluta árásaraðila, eða 73,5% og konur 67,9% árásarþola. Meðalaldur árásaraðila var 36 ár og meðalaldur árásarþola tæp 34 ár. 

Færri ágreiningsmál 

Tilkynningum um ágreining milli skyldra eða tengdra aðila, þar sem ekki er grunur um brot, fækkaði úr 332 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 258 mál á sama tímabili 2026, eða um 22%. Heimilisofbeldismál, þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárás, hótun eða eignaspjöll, eru mjög svipuð að fjölda og í fyrra, eða  327 tilvik samanborið við 322.  Samanlagt voru 585 tilvik heimilisofbeldis og ágreinings skráð á tímabilinu en 654 á sama tíma í fyrra og skýrist sú fækkun nær alfarið af færri ágreiningsmálum. 

Ofbeldi af hendi maka eykst 

Þegar heimilisofbeldismálin eru greind eftir tegund kemur í ljós að ofbeldi af hendi maka jókst úr 119 tilvikum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 135 tilvik sama tímabils 2026, eða um 13%.  Á móti fækkaði ofbeldi af hendi fyrrum maka úr 70 tilvikum í 61.

Ofbeldi foreldris í garð barns var 52 tilvik samanborið við 47 fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 og ofbeldi barns í garð foreldris 57 tilvik samanborið við 51 á sama tíma í fyrra. Þegar horft er til ofbeldis maka, núverandi eða fyrrverandi, voru karlar voru 78,2% árásaraðila og konur 74,4% árásarþola.   

Endurteknu og alvarlegu ofbeldi fækkar 

Tilvik sem flokkast undir endurtekna eða alvarlega hótun gegn lífi og heilsu samkvæmt 218. gr. b hegningarlaga voru 31 á tímabilinu, samanborið við 43 á sama tímabili í fyrra  Beiðnir um nálgunarbann og/eða brottvísun voru 35, eða jafnmargar og á sama tímabili í fyrra. 

Um 73% heimilisofbeldismála á tímabilinu voru á höfuðborgarsvæðinu og 27% á landsbyggðinni. Þá voru 63% ágreiningsmála á höfuðborgarsvæðinu og 37% á landsbyggðinni.     

Skýrsluna má finna hér.

Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstandendur og gerendur.