Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni vikuna 5. til 12. mars 2018.

12. mars 2018

Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar. Í öðru tilvikinu fékk sá sem varð fyrir árásinni skurð á augabrún og var árásaraðilinn handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Í hinu tilvikinu var um minniháttar áverka að ræða. Bæði málin eru í rannsókn.

Þá var einn handtekinn aðfaranótt sunnudags vegna gruns um heimilisofbeldis og var honum sleppt að skýrslutöku lokinni. Málið er í rannsókn.

Síðdegis á föstudaginn fór lögreglan í tvær húsleitir og fundust fíkniefni hjá tveimur aðilum við þá leit. Um er að ræða smáræði af maríhúana. Málin eru í rannsókn.

10 kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, einn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sjö ökumenn voru kærðir vegna ólöglegrar lagningar ökutækja, einn fyrir að nota ekki öryggisbelti í akstri og einn fyrir of hraðan akstur en hann mældist á 75 km/klst. á Hamarsvegi en þar er hámarkshraði 50 km/klst.