Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni dagana 20. til 26. ágúst 2018

27. ágúst 2018

54 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Af þeim voru 37 á ferð um Árnessýsluna, 11 í Rangárvallasýslunum og 6 í Skaftafellssýslunum. Einn þessara ökumanna er grunaður um að hafa verið undir áhrifum við akstur bifreiðar sinnar á 132 km/klst hraða um Suðurlandsveg og sviptur ökurétti að auki. Í ár hafa 1062 ökumenn verið kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu og er það nokkru lægra miðað við síðasta ár þegar 2200 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt allt það ár og 2185 allt árið þar á undan. Misjafnt er milli landshluta hvernig þessi þróun er í hraðakstri en í 6 af 9 umdæmum lögreglu á landinu stefnir í fjölgun hraðakstursbrota á meðan 3 umdæmanna eru með lægri tölur.

3 ökumenn eru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur bifreiðar sinnar án þess að hafa til þess handfrjálsan búnað og einn fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn.

6 tilvik eru skráð þar sem sauðfé varð fyrir bílum í vikunni öll í austur Skaftafellssýslu.

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út til leitar við Hvalnes austan Hafnar þann 22. ágúst eftir að ferðamaður taldi sig hafa heyrt kallað á hjálp þar. Leitinni var hætt þegar hún bar ekki árangur og eftirgrenslan um hvort og hver gæti annar hafa verið þarna á ferðinni gaf ekki tilefni til að ætla að þarna væri einhver í vantræðum á svæðinu.

Þann 25. ágúst voru björgunarsveitir kallaðar til leitar í Þórsmörk eftir að einn farþega í ferðahóp skilaði sér ekki í rútu. Umræddur farþegi fannst síðar í kjarrlendi utan almennra gönguleiða og hafði þá slasast á fæti, líklegast fótbrotnað.

Aðfaranótt 24. ágúst slösuðust 2 menn þegar þeir voru að vinna að lagfæringu heitavatnslagnar í tengibrunni á Selfossi. Mennirnir leituðu sér sjálfir aðstoðar á sjúkrahúsi en ekki liggur fyrir um meiðls þeirra enn sem komið er.

Þann 21. ágúst slasaðist 14 ára drengur þegar hann féll á motorkross hjóli í braut í Bolaöldu. Vel búinn öryggisbúnaði og meiðsl ekki talin alvarleg við skoðun á vettvangi.

Rúða var brotin í gröfu á gámasvæði á Höfn einhvertíman um helgina 10. til 12 ágúst og leikur grunur á að börn hafi verið þar að verki. Þá voru brotnar rúður í útihúsi við Hveragerði og stóð eigandinn unga drengi að þeim verknaði. Það mál unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld.