Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni

2. nóvember 2015

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu fyrir utan hin hefðbundun verkefni sem felast m.a. í því að aðstoða borgarana eftir fremsta megni. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var þó um útköll á öldurhúsin vegna fólks sem annaðhvort var til vandræða eða vegna annarra atvika, sem ekki er ástæða til að tíunda hér.

Um liðna helgi var tilkynnt um þjófnað á afturstuðara af Subaru Impreza, stuðarinn var reyndar ekki á bifreiðinni þegar honum var stolið. Talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað sl. föstudag eða laugardag þar sem stuðarinn var við Vestmannabraut 57.

Að kvöldi sl. föstudags urðu lögreglumenn í eftirliti varir við að aðili var að bera út poka af einum af öldurhúsum bæjarins. Við nánari athugun reyndist áfengi vera í pokanum sem aðilinn kvaðst hafa keypt inni á veitingastaðnum. Má vert staðarins búast við sekt vegna atviksins.

Lögreglan vill minna gangandi vegfarendur á endurskinsmerkin og þá sérstaklega foreldra og forráðamenn barna á að láta börn sín vera með endurskinsmerki, núna þegar svartasta skammdegið fer í hönd.