Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni

2. júní 2015

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og þrátt fyrir að töluvert hafi verið að gerast í skemmtanalífinu um helgina, var rólegt á þeim vígstöðum. Reyndar var eitthvað um pústra um helgina í tengslum við skemmtanahaldið, án þess þó að kærur liggi fyrr.

Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, eftir vikuna, en um er að ræða brot á stöðvunarskyldu, notkun farsíma án haldfrjáls búnaðar við akstur, akstur án ökuréttinda, vanræksla á að nota öryggisbelti í akstri og farþegar fluttir á þann hátt að það veldur þeim hættu.

Lögreglan vill enn og aftur minna ökumenn á að tími nagladekkjanna er liðinn og hvetur þá sem ekki hafa gildar ástæður til að skipta yfir á sumardekkin.

Þá vill lögreglan minna ökumenn á að virða yfirborðsmerkingar á vegum, sérstaklega á Básaskersbryggju en nokkuð er um það að ökumenn virði ekki yfirborðsmerkingar þar. Rétt er að minna á að umferðarréttur fer oft á tíðum eftir yfirborðsmerkingum og því geta þeir sem eru komnir yfir á öfugan vegarhelming samkæmt yfirborðsmerkingum á Básaskersbryggju verið í órétti ef óhapp verður.