Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi fyrstu fjóra mánuði ársins

6. maí 2026

Lögreglan á Austurlandi, í samræmi við stefnu embættisins og markmið, tekur reglulega saman upplýsingar um fjölda helstu brota og verkefna til birtingar.

Tölur fyrstu fjögurra mánaða ársins er að finna hér að neðan og í viðhengi. Þar má meðal annars sjá að skráð hegningarlagabrot eru talsvert færri en þau voru að meðaltali síðustu fimm ár og rétt um helmingi færri en á sama tíma í fyrra. (Sjá hér að neðan.)

Umferðarlagabrot eru svipuð að fjölda og þau voru að meðaltali næstu fimm ár á undan. Flest voru þau árið 2021. (Sjá hér að neðan.)

Umferðarslys eru færri en að meðaltali síðustu fimm ár. Fæst slys eru skráð árið 2021. (Sjá hér að neðan.)



Fíkniefnamál voru óvenju mörg fyrstu fjóra mánuði áranna 2021 og 2025. Fjöldinn er svipaður þetta árið og árin þar á milli, 2022 til 2024. (Sjá hér að neðan.)



Skráðum málum er varða heimilisofbeldi hefur farið fækkandi síðustu ár. (Sjá hér að neðan.)


Aðrar tölur lögreglu um helstu brot og verkefni má sjá hér.