Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Heiðarlegt fólk

12. maí 2011

Honum hefur væntanlega verið illa brugðið manninum sem týndi nokkur hundruð þúsund krónum í peningum. Og að sama skapi hefur hann trúlega tekið gleði sína á ný þegar þeir komu aftur í leitirnar. Lögreglan frétti af málinu í morgun þegar hjón á áttræðisaldri höfðu samband og sögðust hafa fundið umslag á útivistarsvæði í borginni. Í því voru allir peningarnir og einnig kvittun með nafni eigandans. Peningarnir voru því næst sóttir til heiðurshjónanna og þaðan farið með þá á lögreglustöð. Síðan var haft samband við eigandann, mann á miðjum aldri, og kom hann á lögreglustöð í framhaldinu. Hann var að vonum þakklátur og skildi eftir fundarlaun sem lögreglan færði hinum heiðarlegu hjónum.