Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hávaði í heimahúsum

29. júlí 2011

Nokkrar kvartanir bárust lögreglu vegna hávaða í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu á öðrum og þriðja tímanum í nótt. Í nær öllum tilvikum var um að ræða of hátt stillta tónlist sem fór eðlilega fyrir brjóstið á nágrönnum. Annars var nóttin fremur róleg í umdæminu en þó voru þrír ökumenn stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu. Tveir þeirra voru í annarlegu ástandi og sá þriðji hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.