Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hátt í sjötíu nýnemar í lögreglufræði í haust

14. ágúst 2026

Alls hefja 67 nemendur nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri í haust, 39 prósent konur og 61 prósent karlar.

Meðalaldur er 25,5 ár og er um þriðjungur þeirra starfandi við afleysingastörf hjá lögreglu í sumar. Heildarfjöldi samþykktra umsókna í lögreglufræðinámið í ár voru 189 samanborið við 235 gildar umsóknir í fyrra. Af 189 umsækjendum skráðu 181 sig í inntökuprófin en 146 enduðu á að þreyta prófin. Að loknum fyrri hluta inntökuprófanna stóðu 92 umsækjendur eftir sem voru bakgrunnsathugaðir og fóru í heilsufarsskoðun.

Síðari hluti inntökuferlisins byggist á viðtali og vegur það einna þyngst í öllu inntökuferlinu ef frá eru taldir útilokandi þættir er snúa að bakgrunni og heilsufari. Nú þegar síðari hluta inntökuferlisins er lokið liggur fyrir að 67 nemendur hefja nám í haust.

Við óskum verðandi lögreglumönnum innilega til hamingju og hlökkum til að taka á móti þeim er þau hefja starfsnám hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu.