Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Handtekinn með hlaðna skammbyssu og heimagerða sprengju á heimili sínu.

27. febrúar 2012

Lögreglan á Suðurnesjum og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru inn á heimili í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna grunsemda um að maður væri þar með ólögleg skotvopn og jafnvel með heimagerða sprengju.

Við húsleitina fannst heimatilbúin sprengja, ætlað efni til sprengjugerðar, hlaðin skammbyssa og nokkurt magn eggvopna.

Maðurinn var vistaður í fangaklefa og verður yfirheyrður í dag.