Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Halla Bergþóra skipuð ríkislögreglustjóri

15. apríl 2026

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl.

Halla Bergþóra er 56 ára og lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020 sem er stærsta lögregluembætti landsins.

Halla Bergþóra hefur nítján ára reynslu af stjórnun lögregluembætta en síðustu sautján ár hefur hún verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra auk þess sem hún var sýslumaður á Akranesi á árunum 2009 til 2014.

Halla Bergþóra hefur sem lögreglustjóri leitt umfangsmikil verkefni, verið farsæll stjórnandi og stýrt stórum hópi starfsfólks hjá ólíkum lögregluembættum. Halla Bergþóra var formaður lögreglustjórafélagsins á þeim tíma sem lögreglustjóraembættin voru stofnuð, kom að þeirri vinnu í samstarfi við ráðuneytið og átti þátt í að móta nýtt embætti frá grunni.

Embætti ríkislögreglustjóra var auglýst laust til umsóknar þann 19.desember og sóttu fjórir um.

Embættið býður nýjan ríkislögreglustjóra velkominn til starfa og þakkar um leið Grími Hergeirssyni fyrir góð kynni og frábært samstarf sem settur ríkislögreglustjóri. Embættið óskar honum jafnframt velfarnaðar og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.