Hættulegt efni í umferð
14. maí 2026
Gefin hefur verið út gul viðvörun um hættulegt efni í umferð, eða falsað Xanax/alprazólma, en um það má lesa á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins. Þar eru birtar viðvaranir starfshóps um samræmingu gagna og snemmbúnar viðvaranir um fölsuð lyf/fíkniefni sem geta ógnað lífi og heilsu fólks.
Gul viðvörun: Hætta á skaða eftir notkun, hraðpróf gagnast ekki eða aðrar ástæður eru til að sýna aukna varúð. Hér falla undir væg öndunarbælandi efni og/eða blöndur þeirra.
Ávallt skal hringja í neyðarlínuna 112 ef grunur er um lyfjaeitrun eða ofskömmtun.