Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hætta á gróðureldum – förum varlega með eld

13. maí 2025

Almannavarnanefnd á Austurlandi vekur athygli á að lítil úrkoma hefur verið síðustu vikur og gróður víða þurr af þeim sökum.

Hætta á gróðureldum hefur því aukist síðustu daga. Íbúar og gestir fjórðungsins, í sumarhúsahverfum til að mynda þar sem gróður og gróðurþekja er mikil, eru því hvattir til að fara varlega með eld. Í því felst m.a. að sjá til þess að ekki stafi hætta af útigrillum, ekki síst einnota, að glóð úr vindlum eða vindlingum berist ekki í gróður og svo framvegis.

Á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að finna ágæta kynningu á því hvað hafa ber í huga til að koma í veg fyrir gróðurelda og fyrstu viðbrögð við þeim.

Förum varlega með eld, alltaf.