Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Góða skemmtun í sumar

3. júlí 2026

Sumarið er tími hátíða, tónleika og viðburða um land allt – tími gleði og góðrar samveru. Lögreglan hrindir nú af stað vitundarvakningunni Góða skemmtun fimmta sumarið í röð í samvinnu við fjölmarga samstarfsaðila sem koma að hátíðum og viðburðum víðs vegar um landið.

Markmiðið er einfalt: að skemmtanir sumarsins verði öruggar, jákvæðar og ofbeldislausar fyrir öll. Góð skemmtun byggist á góðum undirbúningi, jafnt hjá þeim sem halda viðburði sem og hjá gestum. Við hvetjum öll til að líta eftir hvert öðru og huga að því að komast heil og örugg heim að lokinni skemmtun.

👉 Góð skemmtun er örugg og ofbeldislaus. 112 aðstoðar í neyð.

Á 112.is má finna góð ráð fyrir viðburðahaldara og foreldra, ásamt upplýsingum um úrræði fyrir þolendur ofbeldis um land allt. Á island.is má nálgast upplýsingar um tækifærisleyfi sem sækja þarf um til að halda skemmtun eða viðburð þar sem þörf er á eftirliti eða löggæslu.

Við óskum landsmönnum gleðilegs og öruggs sumars.


Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, helena.sturludottir@logreglan.is eða í síma 444-2570.