Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gjafmildir jólasveinar

29. desember 2010

Það var heldur betur kátt á hjalla þegar nokkrir jólasveinar heimsóttu Barnaspítala Hringsins. Jólasveinarnir léku á alls oddi og skemmtu bæði börnunum, foreldrum þeirra sem og starfsfólki Barnaspítalans. Með þeim í för voru fulltrúar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þessir aðilar áttu í ákveðnu samstarfi á aðfangadag sem gaf af sér peninga og voru þeir við þetta tækifæri afhentir Barnaspítala Hringsins til ráðstöfunar.