Fyrstu þrír mánuðir ársins hjá heimferða- og fylgdadeild
15. apríl 2026
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 fylgdi heimferða- og fylgdadeild (HOF) alls 91 einstaklingum brott af landinu, þar af voru 43 mál vegna ólögmætrar dvalar og 25 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals.

Jafngildir það um 30 loknum málum á mánuði á tímabilinu janúar til mars 2026.
Til samanburðar lauk HOF 389 verkbeiðnum í heild árið 2025, þar af voru 114 vegna ólögmætrar dvalar og 71 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals. Að meðaltali lauk deildin 32 málum á mánuði 2025. Þegar tölur fyrsta ársfjórðungs 2026 eru settar í samhengi við heildartölur ársins 2025 sést að hlutfall brottvísana og frávísana í hópi einstaklinga sem dvelja á landinu í ólögmætri dvöl og í hópi brotamanna er hærra í byrjun árs 2026 en að meðaltali yfir allt árið 2025.
Þá eru mál sem varða fyrrum umsækjendur um alþjóðlega vernd alls 21 á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 195 slík mál allt árið 2025. Fylgdum þeirra hefur fækkað úr 16 einstaklingum að meðaltali á mánuði árið 2025 niður í 7 einstaklinga að meðaltali fyrstu þrjá mánuði ársins 2026.
Þegar litið er til ríkisfangs þeirra einstaklinga sem fylgt var úr landi á tímabilinu janúar til mars 2026 eru flestir albanskir ríkisborgarar, alls 20 einstaklingar. Á eftir fylgja ríkisborgarar Grikklands og Nígeríu eða átta frá hvoru landi og þar á eftir koma ríkisborgarar frá Georgíu og Kanada, alls sex frá hvoru landi.