Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrsti dagur þjóðhátíðar 2009.

1. ágúst 2009

Töluverður erill var hjá lögreglunni sl. nótt. Sinna þurfti ýmsum útköllum, bæði í Herjólfsdal og bænum sjálfum. Um kl.04:00 kom kona á þrítugsaldri að máli við lögreglu í Herjólfsdal og tilkynnti að sér hafi verið nauðgað. Hún var flutt á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum til aðhlynningar. Kona þessi gaf greinagóða lýsingu á geranda og er hans nú leitað. Undir morgun var tilkynnt um aðila sem hafði orðið fyrir líkamsárás af aðila sem hann ekki þekkir. Þessi aðili var fluttur á sjúkrahús en töluverðir áverkar eru á andliti hans og grunur um nef- og kinnbeinsbrot. Bæði þessi mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Þá hafa komið upp 10 fíkniefnamál það sem af er hátíðinni. Í einu þessara mála er grunur um sölu þar sem tíu skammtar af fíkniefnum fundust á ungum manni og einnig töluverð upphæð af peningum. Þessi maður gistir nú fangageymslu vegna rannsóknar á málinu.

Um kl. 22:00 í gærkveldi var ekið á 10 ára gamla stúlku á Illugagötu. Stúlkan var flutt á sjúkrahús en meiðsli eru ekki talin alvarleg. Ýmis önnur mál komu upp, t.d. þurfti að aðstoða vélarvana skemmtibát á leið til Eyja frá Reykjavík og ungur maður féll ofan af svölum í vesturbæ Vestmannaeyja.

Á daglegum samráðsfundi lögreglu með samkomuhöldurum og læknum kom fram að mjög miklar annir hafi verið milli kl. 00 og 03 í nótt. Í dag mun enn bætast við þjóðhátíðargestir til Eyja. Herjólfur mun fara eina ferð í dag með yfir 500 manns og þá er mikið bókað í ferðir með flugfélögunum. Lögreglan áætlar að hingað séu komnir vel á tíunda þúsund manns sem muni bætast við heimamenn í Herjólfsdal.