Fylgdir vegna ólögmætrar dvalar stærsti málaflokkurinn á fyrstu níu mánuðum ársins hjá HOF
26. október 2026
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 lauk heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) afgreiðslu á 271 verkbeiðni.

Flestar þeirra tengdust einstaklingum í ólögmætri dvöl, alls 117 mál, sem svarar til 43% allra lokinna verkbeiðna á tímabilinu. Næst á eftir komu mál tengd sakaferli, fangaflutningum og framsölum, alls 89 mál (33%) og þar af vörðuðu 40 fylgdir einstaklinga sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms síns og voru því nær helmingur þessa málaflokks. Hælismál voru 55 talsins, (20%) en aðstoð við frávísun á landamærum nam 9 málum.
Fjöldi verkbeiðna heimferða- og fylgdadeildar janúar til og með sept. 2026
Af þeim 271 verkbeiðni sem lokið var á tímabilinu voru 189 framkvæmdar með fylgd sem jafngildir um 70% verkefnanna. Í fylgdarlausum ferðum, fylgja lögreglufulltrúar HOF viðkomandi í flug og ganga úr skugga um að viðkomandi yfirgefi landið.
Sé litið til ársins 2025 voru 389 verkbeiðnir afgreiddar. Þar af voru hælismál stærsti málaflokkurinn með um helming allra verkefna. Fyrstu níu mánuði ársins 2026 hefur myndin hins vegar breyst og mál vegna ólögmætrar dvalar tekið við sem stærsti málaflokkur deildarinnar á sama tíma og vægi hælismála hefur dregist saman.
Í lok september voru 154 verkbeiðnir enn til afgreiðslu. Af þeim voru 82 tengdar frávísun eða brottvísun úr hæliskerfi, 44 tengdust brottvísun einstaklinga í ólögmætri dvöl og 21 mál voru vegna fanga, sakaferla eða framsala. Flest opin mál voru í virkri vinnslu, en hluti þeirra beið eftir ferðaskilríkjum eða öðrum nauðsynlegum gögnum.
Tölurnar eru bráðabirgðatölur fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2026 og geta tekið breytingum við lokaúrvinnslu í árslok.
Skýrsluna má nálgast hér.
