Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fréttatilkynning – Mat á aðstæðum og áhættugreining vegna leitar

13. maí 2026

Lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefur borist meðfylgjandi minnisblað COWI, ráðagjafafyrirtækis á sviði m.a. verkfræði, sem unnið var að beiðni Grindavíkurnefndar. Beiðni Grindavíkurnefndar laut að því að ráðgjafafyrirtækið legði mat á, út frá eigin forsendum, óháð öðrum sem hafa komið að málinu, hvort óhætt sé og þá hvernig eigi að standa að leit að manni sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024.

Áður hefur embættið upplýst um fyrri ákvarðanir sínar um að hefja ekki leit miðað við aðstæður nema að ný gögn eða aðstæður liggi fyrir sem geti breytt því mati.

Efni minnisblaðsins er nú til skoðunar innan embættisins og eftir rýni þess verður tekin ákvörðun um framhald málsins.