Fréttatilkynning - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
18. maí 2026
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning kl. 09:10 um einstakling í hugsanlegu geðrofi í Reykjanesbæ. Þegar lögregla kom á vettvang var viðkomandi ógnandi, æstur og skilaði ekki árangri að gefa fyrirmæli.

Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér.
Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri. Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða.