Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning

17. apríl 2009

Tollgæslan í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvaði í gærkvöldi við reglulegt tolleftirlit 22 ára pólskan mann með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn var að koma með flugi frá Kaupmannahöfn og reyndist með um eitt kíló af ætluðu amfetamíni falið í skósólum. Maðurinn var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjaness. Lögreglan á Suðurnesjum hefur málið til rannsóknar.