Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning.

12. febrúar 2018

Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri á Austurlandi, Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi. Í yfirlýsingunni felst að þann 1. mars nk. munu lögregla og félagsþjónusta á Austurlandi taka upp samstillt verklag í starfsemi sinni. Markmiðið er markvissari viðbrögð og úrræði gegn heimlisofbeldi og að veita þolendum og gerendum aðstoð og bæta stöðu barna, sem búa við ofbeldi á heimilum.

Fyrirmyndin er verklagið „Að halda glugganum opnum“, sem er samstarfsverkefni lögreglu og félagsþjónustu á Suðurnesjum, sem miðar að því að bæta rannsóknir í málum er varða heimilisofbeldi, nýta betur úrræði um brottvísun af heimili og nálgunarbann og að koma fleiri málum í gegnum réttarvörslukerfið.

Verkefnið, sem er átaksverkefni gegn heimilisofbeldi, mun standa í eitt ár og árangur metinn að þeim tíma liðnum. Allt umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi er því komið undir sama verklag í heimilisofbeldismálum.