Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Frávísun vegna óljóss tilgangs dvalar og ófullnægjandi fjárráða

2. mars 2026

Um helgina höfðu lögreglumenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar afskipti af manni sem var nýkominn til landsins. Við nánari skoðun uppfyllti maðurinn ekki inngönguskilyrði en við fyrri dvöl hérlendis hafði maðurinn gerst brotlegur um fíkniefnamisferli.

Maðurinn sagðist jafnframt vera nýlega laus úr fangelsi í heimalandi vegna annars máls. Var manninum synjað um landgöngu og frávísað þar sem hann gat ekki sýnt fram á tilgang dvalar og sýnt fram á nægjanleg fjárráð til þess að dveljast hér á landi.