Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir í Súðarvogi í Reykjavík

13. desember 2012

Frá og með föstudeginum 14. desember verður lokað fyrir umferð um hluta Súðarvogs í Reykjavík, þ.e. á milli Dugguvogs og Knarrarvogs. Þetta er gert vegna vinnu við gerð hjóla- og göngustígs, en áætlað er að verkið taki um eina viku. Dugguvogi var lokað um tíma af sömu ástæðu, en seinnipartinn í dag stóð til að opna þar fyrir umferð á nýjan leik.