Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir á Reykjanesbraut í Reykjavík

26. júní 2024

Í kvöld er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein Reykjanesbrautar í Reykjavík í norðurátt, á milli gatnamóta við Stekkjarbakka og Miklubraut. Kaflinn er um 660 m að lengd og verður þrengt í eina akrein meðfram framkvæmdasvæðinu og hámarkshraði lækkaður. Rampur upp í Ártúnsbrekku verður lokaður. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 19 til 4 í nótt.

Ökumenn eru beðnir um að aka varlega, sýna tillitssemi og virða merkingar.