Framhaldstilkynning vegna líkamsárásar
16. júní 2026
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem tilkynnt var um í fyrrinótt. Þrír voru handteknir á vettvangi. Að lokinni yfirheyrslu fór lögreglan fram á gæsluvarðhald yfir tveimur aðilum sem fallist var á.

Þriðja aðilanum var sleppt. Að mati lögreglu eru brýnir rannsóknarhagsmunir fyrir hendi og er rannsókn lögreglu á frumstigi.