Fölsuð skilríki
3. nóvember 2025
Tveir karlmenn á tvítugsaldri voru handteknir í umdæminu í gærdag og farið í húsleitir í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fölsuðum rafrænum skilríkjum.

Mennirnir eru grunaðir um að hafa selt töluverðum fjölda ólögráða ungmenna fölsuð skilríki. Það var gert með þeim hætti að kaupendur þjónustunnar fóru inn á ,,mínar síður“ á Ísland.is og þar var fæðingarári í kennitölu þeirra breytt svo ungmennin virtust vera orðin lögráða eða komin á áfengiskaupaaldur.
Þar sem rannsóknargögn benda til þess að mörg hundruð ungmenni eigi hlut að máli mælist lögregla til þess að foreldrar eigi samtal við börn sín um alvarleika þess að framvísa fölsuðum skilríkjum en slíkt fellur undir ákvæði hegningarlaga um skjalafals. Þá vill lögregla beina því til allra söluaðila ávanabindandi efna, hvort heldur sem er áfengis eða nikótíns, bæði í verslunum og vínveitingastöðum, að sú leið að skoða eingöngu Ísland.is vafrasíðu sé ekki örugg.
Lögreglan ítrekar að nauðsynlegt er að söluaðilar skoði skilríki viðskiptavina í island.is appinu eða óski eftir staðfestingu á aldri viðkomandi með framvísun gildra hefðbundinna persónuskilríkja s.s. nafnskírteinis, ökuskírteinis eða vegabréfs.
Gott er að benda á að í island.is appinu má finna möguleika til að kanna hvort skilríki sé í lagi eða ekki – en það má finna efst í hægra horni í flipanum „skírteini“. Þá opnast gluggi þar sem skanna má kóða sem finna má neðst í skírteininu og koma þá upplýsingar um hvort skírteinið sé gilt eða ekki.