Fölsk fyrirtækjalén íslenskra fyrirtækja notuð til fjársvika
14. október 2025
Lögreglan hvetur fyrirtæki til að vera á varðbergi gangvart tilraunum til fjársvika þar sem notuð eru fölsk íslensk fyrirtækjalén

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú mál til rannsóknar þar sem útlit er fyrir að erlendir aðilar séu að skrá íslensk lén með heitum sem líkjast íslenskum fyrirtækjaheitum. Tilgangurinn virðist vera að svíkja erlenda birgja þessara fyrirtækja og/eða undirbúa svokölluð forstjórasvik (Business e-mail Compromise).
Upplýsingar eru um a.m.k. þrjú fölsk lén sem svipar til léna íslenskra fyrirtækja og hefur þeim þegar verið lokað af ISNIC, skráningarstofu .is veffanga á Íslandi. Fyrirtækin sem eiga í hlut vita af málinu og hafa öryggisteymi þeirra gripið til ráðstafana til þess að koma í veg fyrir tjón hjá fyrirtækjunum og viðskiptavinum þeirra.
Talið er að undirbúningur þessara svikaárása hafi átt sér talsverðan aðdraganda og ekki er útilokað að fleiri fyrirtæki séu þarna undir. Lögreglan hvetur því öryggisteymi og upplýsingadeildir fyrirtækja til að vera á varðbergi.
Við rannsókn málsins hefur LRH notið aðstoðar frá Netöryggisfyrirtækinu Ambögu sem fyrst tilkynnti málið til lögreglu.
Hafir þú eða teljir þig eða fyrirtæki þitt hafa orðið fyrir netglæp mælum við með því að þú tilkynnir það strax til þíns viðskiptabanka og með því að senda lögreglu tölvupóst á cybercrime@lrh.is