Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fjölgun tilkynninga um kynferðisbrot fyrstu þrjá mánuði ársins

30. júní 2026

Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um 9% fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 miðað við sama tímabil í fyrra. Mest áberandi er veruleg fjölgun tilkynninga um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot sem jukust um 64% milli ára og mikil aukning tilkynninga um vændi sem nær þrefölduðust. Á sama tímabili fækkaði tilkynntum nauðgunum lítillega milli ára.

Ríkislögreglustjóri hefur birt nýja skýrslu um tilkynnt kynferðisbrot til lögreglu fyrstu 3 mánuði ársins 2026. Á tímabilinu var tilkynnt um 153 kynferðisbrot til lögreglu, samanborið við 140 á sama tímabili árið 2025 sem er 9% aukning milli ára. Ef litið er til lengra tímabils má sjá að brotin voru flest fyrstu þrjá mánuði ársins árin 2019, 2021 og 2022. Kynferðisbrotunum fækkaði eftir það en fjölgaði í ár miðað við síðastliðin 3 ár. 

Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Tölur fyrir nýleg tímabil geta því enn breyst eftir því sem eldri brot eru tilkynnt. Tilkynntar nauðganir á tímabilinu voru 47, fjórum færri en á sama tímabili í fyrra. Sé hins vegar horft til brota sem áttu sér stað þessa fyrstu þrjá mánuði fjölgaði þeim milli ára, úr 34 í 40.  

Tilkynningum um stafræn kynferðisbrot fjölgar verulega 

Tilkynningar um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot voru 46 á tímabilinu samanborið við 28 árið áður sem er 64% aukning.  Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára nemur aukningin um 45%. Kynferðisbrot gegn börnum voru 29 talsins eða 16% fleiri en á sama tímabili árið 2025. 

Mikil aukning tilkynninga um vændi 

Tilkynningar um vændi jukust milli ára, úr 11 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 19 mál á sama tímabili 2026, sem er 73% aukning.  Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára þar á undan er um þreföldun að ræða eða 200% aukningu.  Sveiflur í þessum flokki geta tengst frumkvæðisvinnu lögreglu og aukinni áherslu stjórnvalda á skipulagða brotastarfsemi fremur en raunbreytingu á tíðni brota. 

Konur í miklum meirihluta brotaþola 

Konur voru 83% brotaþola í öllum tilkynntum kynferðisbrotum og hlutfallið var enn hærra í nauðgunarmálum eða 95%. Hlutföllin snúast við þegar litið er til grunaðra en karlar voru 90% þeirra sem grunaðir voru um kynferðisbrot á tímabilinu og 98% grunaðra í nauðgunarmálum. 

Töluverður aldursmunur var milli brotaþola og grunaðra.  Meðalaldur brotaþola var 24 ár en meðalaldur grunaðra 34 ára.  Tæpur helmingur brotaþola eða 48% var undir 18 ára aldri.  

Skýrsluna má finna hér.


Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstandendur og gerendur og meðferð mála í réttarkerfinu. 

Gögnin eru sótt úr málaskrá ríkislögreglustjóra, miðast við skráningartíma brots og voru uppfærð 15. júní 2026.