Fjölgun innbrota í bifreiðar
19. október 2026
Nokkuð hefur verið um tilkynnt innbrot í bifreiðar í umdæminu s.l. vikur. Í sumum tilvikum hefur tjónið verið metið upp á hundruð þúsunda.

Lögreglan vil hvetja umráðamenn bifreiða að læsa þeim og skilja ekki eftir verðmæti á opnum og óvörðum stað. Þar sem bifreiðum er lagt á vegum fyrirtækja hefur það mikið forvarnargildi að stilla upp myndavélum til að vakta bifreiðastæði. Jafnframt viljum við hvetja íbúa til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir.