Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fjöldi tilkynninga vegna heimilisofbeldis milli foreldra og barna tvöfaldast frá 2019

24. september 2026

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar.

Á landsvísu fékk lögregla 1.188 tilkynningar um slík mál á tímabilinu janúar til júní. Er það um 3% fækkun samanborið við sama tímabil síðustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið til ársins 2025 var tæplega 6% fækkun tilkynninga. Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 tilkynningum á dag, eða 198 á mánuði.  

Mikilvægt þykir að skrá bæði ágreining og heimilisofbeldi eins og við á til að fá heildstæða mynd af tilvikum og hvort tilvik geti leitt til ítrekaðra og alvarlegri atvika. Þegar eingöngu er litið til heimilisofbeldismála, þ.e. tilvika þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárásir, hótanir eða eignaspjöll, þá voru tilvikin 637, eða rúmlega 7% fleiri en ef miðað er við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára og um 3% fleiri miðað við árið 2025. Flest heimilisofbeldismál voru tilkynnt í mars, eða 122.  

Tilkynningar um ágreining milli skyldra/tengdra aðila voru 551, eða um 13% fækkun miðað við meðaltal síðustu þriggja ára og 14% fækkun miðað við árið 2025. Fækkun tilkynninga í heild skýrist því af færri ágreiningsmálum.  Miðað við mannfjölda var tíðni heimilisofbeldis um 162 tilvik á hverja 100.000 íbúa sem er svipaður fjöldi og árin 2021 og 2022.  

Fleiri mál milli fjölskyldumeðlima, færri milli fyrrum maka 

Þegar tengsl árásaraðila og árásarþola eru skoðuð kemur í ljós að heimilisofbeldismál milli hjóna, sambúðarfólks eða para, núverandi eða fyrrverandi, voru 380, eða um 60% málanna, og stóð fjöldinn í stað milli ára. Þar af var ofbeldi af hendi maka 263 tilvik og hafa þau ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2019. Tilvik vegna ofbeldis af hendi fyrrum maka voru 117  og hafa ekki verið færri á sama tímabili. Hlutfall fyrrum maka af heildarfjölda tilkynninga vegna ofbeldis í parsamböndum hefur lækkað úr 42%  árið 2019 í 31% árið 2026.  

Tilvik þar sem gerandi og þolandi tengjast fjölskylduböndum voru 236 á tímabilinu og hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2019. Miðað við mannfjölda hefur tíðni slíkra mála hækkað um þriðjung frá árinu 2023, á meðan tíðni ofbeldis af hendi maka eða fyrrum maka hefur lækkað um 12%. Þar vegur þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik, en í báðum flokkum er talið óháð aldri barns. Frá árinu 2019 hefur tíðni beggja flokka miðað við mannfjölda nær tvöfaldast en þetta má m.a. rekja til markvissari skráningar í þessum málum. Í fjölskyldumálum voru 38% þolenda börn undir 18 ára aldri. 

 Fleiri alvarleg mál og fleiri beiðnir um nálgunarbann 

Tilvik þar sem lífi, heilsu eða velferð fjölskyldumeðlims var endurtekið eða á alvarlegan hátt ógnað, sbr. 218. gr. b almennra hegningarlaga, voru 93 samanborið við 77 á sama tímabili í fyrra og hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá gildistöku ákvæðisins árið 2016. 

Beiðnir um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili fyrstu sex mánuði ársins voru 65, eða 18% fjölgun miðað við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan. Miðað við árið 2025 fjölgaði beiðnum um 10%. Miðað við mannfjölda er tíðni beiðna svipuð og árin 2021 til 2023. 

Skýrsluna má finna hér. 


Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstandendur og árásaraðila til að láta af hegðun sinni. 

Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi nákomins, þ.e. árásaraðili og árásarþoli eru skyldir, tengdir eða hafa sögu um tengsl og eru tilvikin ekki bundin við heimili fólks. Útköll lögreglu þar sem ekki er grunur um brot eru skráð sem ágreiningur á milli skyldra og tengdra. Tíðni miðað við mannfjölda byggir á tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda 1. janúar hvers árs. 

Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is.