Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fimmtíu ár frá fyrstu útskrift íslenskra lögreglukvenna

22. maí 2026

Í gær var þess minnst að árið 1976 útskrifuðust í fyrsta sinn fjórar lögreglukonur frá Lögregluskóla ríkisins og hófu störf í almennri lögreglu.

Þar með var stigið mikilvægt skref í þróun íslenskrar löggæslu og átt að fjölbreyttara og jafnara starfsumhverfi.

Við athöfnina voru þrjár þessara brautryðjenda viðstaddar, Arnþrúður Karlsdóttir, Björg Jóhannesdóttir og Katrín Þorkelsdóttir, og þeim færðar þakkir fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu. Jafnframt var fjórðu konunnar minnst, Dóru Hlínar Ingólfsdóttur, með virðingu og þakklæti, en hún er látin.

Saga lögreglukvenna á Íslandi er bæði löng og merkileg. Hún lýsir þrautseigju, fagmennsku og vilja til að ryðja brautina þar sem áður höfðu staðið hindranir. Þær konur sem við heiðruðum í gær stigu fram á tímum þegar það var alls ekki sjálfgefið að konur gegndu lögreglutörfum á sama vettvangi og karlar.

Með störfum sínum og framgöngu sýndu þær að hæfni, dómgreind og þjónustulund ráðast ekki af kyni heldur karakter, menntun og heilindum. Eru þeim innilegar þakkir færðar fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu.