Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fimm teknir fyrir ölvunarakstur

1. febrúar 2011

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír Þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, einn á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 28-50 ára og ein kona, 25 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.