Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fimm líkamsárásir um helgina

2. mars 2010

Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Ein þeirra átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags en þá voru tvær tennur slegnar úr tvítugum pilti. Árásarmaðurinn, sem er nokkrum árum eldri, var handtekinn og færður í fangageymslu. Karlar voru bæði gerendur og þolendur í öllum málunum nema einu en þar átti í hlut kona á sjötugsaldri. Sú var handtekin eftir að hafa látið ófriðlega á öldurhúsi og bæði slegið til starfsmanna og gesta. Í öllum tilvikum nema einu kom ölvun við sögu. Undantekningin átti sér stað í kappleik á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu þegar tapsár íþróttamaður gekk af velli og sló til áhorfanda. Sá síðarnefndi slasaðist ekki en var skiljanlega stórlega misboðið.