Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fimm aðilar án atvinnuréttinda

9. október 2026

Lögreglan á Suðurnesjum fór í sameiginlegt eftirlit með Skattinum og Vinnueftirlitinu með bílaleigum og gististöðum í umdæminu.

Við eftirlitið voru höfð afskipti fimm erlendum ríkisborgurum sem reyndust ekki hafa leyfi til að stunda atvinnu hér á landi, sem og atvinnurekendum. Þessum fimm aðilum var sleppt að lokinni yfirheyrslu að einum undanskyldum sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald og bíður brottvísunar úr landi.

Eftirlit af þessum toga eru regluleg og vinna saman að því að koma í veg fyrir ólöglega atvinnustarfsemi, tryggja réttindi starfsfólks og fylgja eftir lögum á vinnumarkaði.