Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni haldlögð á Ísafirði.

24. júlí 2013

Síðdegis í gær fann lögreglan á Vestfjörðum fíkniefni, stera og áhöld til fíkniefnameðhöndlunar við húsleit sem framkvæmd var í íbúð einni á Ísafirði. Fíkniefnin sem um ræðir voru á annað hundrað grömm af kannabisefnum og nokkur grömm af ætluðu kókaíni og sterum. Vegna efnismagnsins leikur grunur á að það hafi verið ætlað til sölu. Málsaðilar sögðu það til eigin neyslu.

Fjórir aðilar voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við húsleitina. Þeim hefur nú verið sleppt og telst málið upplýst.