Fíkniefnamál – fimm í gæsluvarðhaldi
30. maí 2026
Fimm karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald, eða til þriðjudagsins 9. júní, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. Handtökur þeirra voru framkvæmdar í Reykjavík og Hveragerði, en málið varðar töluvert magn af sterkum fíkniefnum. Rannsókn málsins hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um hana að svo stöddu.
