Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnaakstur og varsla fíkniefna

31. ágúst 2015

Ökumaður um tvítugt sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina við hefðbundið eftirlit reyndist ekki aðeins vera undir áhrifum fíkniefna heldur var hann einnig með kannabis í poka í bílnum. Hann viðurkenndi eign sína á fíkniefnunum.

Annar einstaklingur sem lögregla hafði afskipti af var með fíkniefni í tóbaksdós, sem hann vísaði lögreglumönnum á.