Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Féll úr stiga og beinbrotnaði

9. október 2015

Maður sem féll úr álstiga þar sem hann var við vinnu sína í gær handleggsbrotnaði og fór úr olnbogalið. Maðurinn var að vinna við brunavarnarkerfi í leikskóla í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar hann féll úr stiganum niður á gólf byggingarinnar og kom niður á olnbogann. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala þar sem gert var að meiðslum hans. Lögregla upplýsti Vinnueftirlitið um slysið.