Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Féll af hestbaki og slasaðist

11. apríl 2016

Hestamaður slasaðist þegar hann féll af hesti sínum við Mánagrund í Keflavík sl. föstudag. Lögregla og sjúkrabifreið fóru á staðinn og var knapinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ekki er vitað um ástæður óhappsins en maðurinn reyndist hafa hlotið meiðsl á ökkla.