Þessi frétt er meira en árs gömul
Falsaður 5.000 kr. peningaseðill í umferð.
17. maí 2010
Lögreglunni á Vestfjörðum hefur borist kæra vegna framvísunar 5.000.- kr. peningaseðils sem reyndist falsaður. Seðillinn var afhentur í verslun einni á Ísafirði fyrr í dag. Lögreglan á Vestfjörðum er með málið til rannsóknar.
Lögreglan vill hvetja verslunarfólk og aðra þá er taka við peningaseðlum í viðskiptum að vera á varðbergi og rifja upp þá öryggisþætti sem finna má á peningaseðlum, sjá heimasíðu Seðlabanka Íslands.