Færri hegningarlagabrot á Austurlandi
1. október 2026
Hegningarlagabrot á Austurlandi eru 23% færri fyrstu níu mánuði ársins 2026 en þau voru að meðaltali fyrstu níu mánuði áranna 2021–2025.

Helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi fyrstu níu mánuði ársins 2026 liggja nú fyrir. Þegar þær eru bornar saman við meðaltal sömu níu mánaða áranna 2021 til 2025 kemur fram að skráð hegningarlagabrot eru umtalsvert færri en verið hefur að jafnaði undanfarin ár.
Alls hafa 68 hegningarlagabrot verið skráð fyrstu níu mánuði ársins 2026, samanborið við 88 að meðaltali á sama tímabili áranna 2021–2025.
Fækkun hefur orðið í öllum helstu brotaflokkum. Eignaspjöll eru 9 talsins samanborið við tæplega 15 að meðaltali á sama tímabili undanfarin fimm ár. Auðgunarbrot eru 16, samanborið við 22 að meðaltali og ofbeldisbrot 17 samanborið við 19 að meðaltali.
Fjögur kynferðisbrot hafa verið skráð fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við átta að meðaltali á sama tímabili áranna 2021–2025. Þar sem um tiltölulega fá mál er að ræða ber þó að fara varlega í að draga ályktanir af breytingum milli ára.
Skráð umferðarlagabrot, að hraðamyndavélabrotum undanskildum, eru færri en að meðaltali undanfarin ár. Alls hafa 1.079 umferðarlagabrot verið skráð fyrstu níu mánuði ársins samanborið við tæplega 1.200 að meðaltali á sama tímabili áranna 2021–2025.
Hraðakstursbrot eru 799 samanborið við 891 að meðaltali á sama tímabili. Fjöldi ökumanna sem stöðvaðir hafa verið sviptir ökuréttindum er einnig undir meðaltali, eða 16 á móti 19 að meðaltali.
Ölvunarakstur er hins vegar svipaður að fjölda og að jafnaði undanfarin ár. Tuttugu og tvö ölvunarakstursmál hafa verið skráð fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 21 að meðaltali.
Fíkniefnaakstur sker sig úr í samanburðinum, en 18 slík mál hafa verið skráð fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 12 að meðaltali á sama tímabili áranna 2021–2025. Þá hefur fíkniefnamálum fjölgað lítillega miðað við meðaltal.
Skráð heimilisofbeldismál eru færri en að meðaltali undanfarin ár og umferðarslysum hefur fækkað miðað við meðaltal áranna 2021–2025.
Í meðfylgjandi skjali má sjá helstu tölur fyrir fyrstu níu mánuði áranna 2021–2026. Meðaltalslína sem þar er að finna sýnir meðaltal allra áranna 2021–2026. Í texta hér að ofan er meðaltal áranna 2021 - 2025 hinsvegar borið að árinu 2026.