Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Erlendur karlmaður óskar eftir brottvísun

12. maí 2026

Um helgina hafði erlendur karlmaður samband við neyðarlínuna og óskaði eftir fundi við lögregluna í því þeim tilgangi að honum yrði brottvísað þar sem hann væri í ólögmætri dvöl á Íslandi.

Lögreglan á Suðurnesjum kom til fundar við manninn sem sagðist hafa verið í ólögmætri dvöl á Íslandi í tvö til þrjú ár. Maðurinn var með engin skilríki meðferðis og var því ekki hægt að staðfesta auðkenni hans. Maðurinn var því handtekinn en eftir að auðkenni hans voru staðfest var manninum sleppt. Útlendingastofnun mun svo í framhaldi taka ákvörðun um hugsanlega brottvísun og endurkomubann á Schengen svæðinu.