Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Enn á nagladekkjum

23. maí 2012

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á annan tug ökumanna í gær og fyrradag en hinir sömu voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.