Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ellefu líkamsárásir

7. apríl 2009

Ellefu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Tæplega helmingur þeirra, eða fimm, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar en nokkrir karlar fóru þó heim ýmist nefbrotnir eða með brotnar tennur eftir skemmtanir næturinnar. Í tveimur tilvikum voru þolendur skallaðir í andlitið. Alvarlegasta líkamsárásin átti sér stað í Lækjargötu aðfaranótt sunnudags. Þar var karl á þrítugsaldri sleginn í andlitið og var hann fluttur á sjúkrahús, alvarlega slasaður. Árásarmaðurinn var handtekinn nokkru síðar.