Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Eldur í bifreið

8. apríl 2010

Eldur kviknaði í fólksbifreið skammt frá Hlemmi í nótt. Enginn var í bifreiðinni þegar eldurinn kom upp en hún er svo gott sem ónýt eftir brunann. Eldsupptök eru ókunn en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða.