Fara beint í efnið

Þetta vefsvæði er í vinnslu. Opinber vefur er

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Eldheitir stuðningsmenn

12. mars 2025

Reglulega berast lögreglu kvartanir vegna hávaða og gærkvöldið var engin undantekning í þeim efnum.

Lögreglustjarna (.png)

Að þessu sinni var það vegna Liverpool-aðdáenda sem fóru á límingunum þegar liðið þeirra tapaði í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik í Meistaradeildinni.

Að tapa með þeim hætti er sárt og því fylgja stundum öskur og læti enda vonbrigðin gríðarleg hjá eldheitum stuðningsmönnum. Engum varð þó meint af í þeim tveimur málum sem sinnt var vegna þessa í gærkvöld, en þá höfðu áhyggjufullir nágrannar hringt í lögregluna eftir að óhljóð höfðu borist á milli íbúða.

Til að gæta allrar sanngirni skal tekið fram að útköll sem þessi eru ekki einvörðungu bundin við stuðningsmenn Liverpool, nei síður en svo.